Happdrætti Háskóla Íslands

  • Hönnun
  • Ráðgjöf
  • Framendaforritun
  • Bakendaforritun
  • Vefþjónustutengingar

Við gerðum vefþjónustur til að kaupa miða, taka frá miða, breyta skuldfærsluleiðum og margt fleira - og tengdum þær við nýja vefinn. Ferlið fól í sér töluverða samþættingu á eldri kerfum en núna önnumst við þjónustuna við viðskiptavini frá degi til dags og miðlum viðeigandi upplýsingum til Happdrættisins.

Nýtt sjálfvirkt viðmót

Happdrætti Háskóla Íslands var stofnað árið 1933 og hefur frá upphafi fjármagnað nær allar byggingar Háskólans. Til að happdrættið gæti sinnt því hlutverki áfram var ákveðið að gera allt varðandi miðasölu og utanumhald leikja Happdrættisins eins sjálfvirkt og hægt er. Sjón er sögu ríkari.

hhí

Markmiðin og leiðirnar

Sala á happdrættismiðum, upplýsingar um vinningsmiða og fleira var meginmarkmið HHÍ, en rekstur þáverandi vefs hafði ekki gengið vel. Við ákváðum að byggja á nýjustu stöðlum, nýta rafræn skilríki og gera öll viðskipti eins auðveld fyrir þátttakendur og mögulegt er.