Tímasparnaður
Sjálfvirk innsetning mælikóða, hýsing og mælingar er allt á einum og sama staðnum í Airserve sem sparar dýrmætan tíma og einfaldar utanumhald.
Að kaupa birtingu á vefborða á vinsælum miðli er góð leið til að ná til neytenda. En hvernig veit maður hvaða árangri maður nær með auglýsingunni? Er hægt að mæla hversu margir sjá hana, hversu margir smella?
Airserve heldur utan um allar auglýsingar á einum stað.
Airserve gerir það einfalt að uppfæra eða breyta auglýsingum eftir að þær eru farnar í loftið. Ekki er nauðsynlegt að senda uppfærslur til miðla, jafnvel þó breytingin þurfi að eiga sér stað um miðja nótt.
Hægt er að sameina tvær eða fleiri auglýsingar af sömu stærð í eina auglýsingu gagnvart miðlinum sem birtir þær.